Aðalvalmynd

Prófíll

PrófÞorbjörg Þorvaldsdóttir

Ég fór að velta fyrir mér áðan, afhverju fæ ég aldrei að taka próf í því sem ég er best í varðandi nám? Mín sterkasta hlið fær hreinlega aldrei að njóta sín til fulls! Ég verð að viðurkenna að ég er frekar vonsvikin með þetta skólakerfi okkar...

Jú, ég er auðvitað að tala um hæfileikann "að gera allt annað en að læra heima".

Nú, ef þú þekkir mig bara smávegis þá veistu að ég er ein af þessum óskipulögðu námsmönnum sem tekst aldrei að gera heimavinnuna sína eða læra almennilega undir próf. Hins vegar er ég gríðarlega góð í að finna mér eitthvað annað að gera, og mér finnst það bara sjálfsögð mannréttindi að ég fái að taka próf í því. Ég gæti listað upp milljón hluti.

Þegar þessi blessuðu próf er á dagskránni er margt hægt að gera annað en að læra, ég ætla hér að telja upp nokkra möguleika sem þið MRingar sem eruð enn í prófum eins og ég ættuð að geta nýtt ykkur síðustu metrana:

1. Fara í sund
Það bregst ekki að ég fer í sund á prófatíma, meira að segja er ég farin að taka upp á því að mæta á sundæfingar - sem ég hef ekki gert síðastliðið ár takk fyrir og góða kvöldið! Mæli eindregið með þessu...

2. Fara í tölvuna
Ég held ég sé sjaldan jafn mikið í tölvunni og þegar það er próf daginn eftir. Þá fer maður á msn, talar við hina sem eru að fara í próf og lætur samræðurnar snúast um hvað maður nenni ekki að læra, eða sé kominn stutt með efnið. Svo getur maður alltaf stalkað fólk á google eða myspace, bregst ekki.

3. Borða
Þetta er uppáhaldsiðjan mín. Þegar ég hef ekkert að gera eða langar ekki til að læra, þá er ísskápurinn besti vinur minn í allri veröldinni! Þá skiptir ekki máli hvort maður innbyrðir agúrku, gulrætur eða skyr (ég borða að sjálfsögðu aldrei neitt sem er óhollt) - bara það að fá sér að borða drepur tímann og er góð afsökun, því það þurfa allir næringu og hún er líka mikilvægari en stærðfræði.

4. Leggja sig
Í prófum sígur alltaf á mig einkennileg þreyta sem gerir það að verkum að ég bara verð að leggja mig. Þetta hefur reynst vel í undirbúningi fyrir enskupróf. Mig dreymir nefnilega alltaf á ensku.

5. Horfa á Simpsons
Talandi um ensku þá er frábært að horfa á hinn hámenningarlega sjónvarpsþátt The Simpsons undir því yfirskini að maður læri ensku af því. Ég fékk alveg 9.5 í samræmdu prófunum og ég vil alfarið þakka það Bart og félögum sem skemmtu mér kvöldið áður.

6. Hringja
Í þessu er ég algjör expert. Símhringingar og spjall í síma er eitthvað sem ég hef gert að minni sérgrein í gegnum árin. Meðal annars kenndi ég Settu að tala í símann, en hún kunni ekki að spjalla, að eigin sögn, áður en hún kynntist mér. Allavegana, þá hringir maður í einhvern sem er að fara sama próf, þykist ætla að tala um prófið en svo enda samræðurnar án undantekninga í svæsnum sögum um ástir og örlög náungans. Reyndar tala ég alltaf svo lengi að fólk verður liggur við að skella á mig því það ætlar að halda áfram að læra… 

7. Syngja
Ég er undir öllu venjulegu afleitur söngvari, en í prófum fæ ég útrás með því að syngja uppáhaldslögin mín og taka það upp á símann minn. Svo vona ég alltaf að ég syngi vel, en ég verð fyrir vonbrigðum í hvert einasta skipti. 

8. Skoða myndir
Án gríns þá er ég búin að fara í gegnum svona sjö fjölskyldualbúm á undanförnum dögum. Dáist að því hvað ég var fallegt barn og hlæ að pabba og mömmu þegar þau voru asnaleg.  

9. Fá sér myspace
Það er alltaf þannig að það koma svona 100 nýjir krakkar sem maður þekkir inná myspace á prófatíma. Ég fékk mér einmitt myspace í jólaprófunum, en í vorprófunum er ég bara búin að breyta því aðeins og setja nýjar myndir og svona.

10. Allt þetta sem maður gerir aldrei
Taka til í herberginu, fara út með ruslið, hringja í ömmu, teikna myndir, þrífa bílinn, sortera í skúffunum, fara með mömmu út að versla... ég veit þið kannist við þetta!

 Nú eru fimm dagar í næsta próf og ég veit að ég mun læra undir það á sunnudaginn. Þangað til ætla ég að finna mér eitthvað skemmtilegt að gera.

Úh!Þorbjörg Þorvaldsdóttir

Ég elska þegar vorið svona liggur í loftinu - maður hreinlega finnur lyktina af sumrinu þar sem það nálgast aumingja veðurbörðu Íslendingana með hverjum deginum.

Páskafríið er búið að vera viðburðaríkt, en það versta er að ég hef varla opnað bók - en planið var auðvitað að liggja í lærdómi allt heila fríið. Pss, ég hefði getað sagt mér það, þeir sem þekkja mig brostu fallega og lýstu síðan yfir trú sinni á mér, eftir að ég hafði útlistað metnaði mínum:
"Þú veist að þú átt ekkert eftir að læra svona mikið."

Einhvernveginn taldi ég mér trú um að ég gæti safnað mér einbeitingu til að læra þegar það eru heilar þrjár vikur í próf. Málið er bara að ég læri langbest undir miklu álagi og á síðustu stundu. Ég er að reyna að breyta þessu en það er að ganga eitthvað brösulega hjá mér, vá hvað ég sé fram á bauga og tár í vorprófunum. Enda einstaklega veikgeðja manneskja hér á ferðinni. Ég vældi einmitt hástöfum yfir stærðfræðiprófinu um jólin, þá er ég að tala um alvöru tár og ekka og læti. Djöfull sé ég eftir því! Enda náði maður því alveg vel yfir ;P

Hömm - við fjölskyldan erum að flytja okkur um set hérna í Garðabænum og stefnan tekin á Þrastarlund í þetta skiptið. Þetta verður massa, hlakka bara til að vera búin að öllu þessu flutningsveseni! En nú þarf ég að þjóta til Sigrúnar frænku að passa, mín bara rétt að komast í bloggstuðið samt - þú ert heppin/nn, þetta hefði getað orðið 4 blaðsíðna blogg eins og hérna í den...



Margrét myndó on fireÞorbjörg Þorvaldsdóttir

Ég er búin að vera í svo mikilli myndavímu undanfarið að það eru komnar myndir frá gærkvöldinu líka :D hehe, svona er þetta eftir þriggja mánaða aðskilnað frá minni heittelskuðu Margréti... hún á sér enga líka þessi kempa!

Allavegana, skemmtilegt kvöld í gær! Það er sko bara einn skóli í Gettu Betur ;)

Nýjar myndir!Þorbjörg Þorvaldsdóttir

Já Margrét myndavél er loksins komin heim! Veei!

Var að setja myndir frá ballinu í gær ;) eða reyndar bara úr fyrirpartíinu, leiðinni á ballið og svo úr skólanum í dag... tékkís!

Kv. Tobbs

AkureyriÞorbjörg Þorvaldsdóttir

Jæja þá erum við mætt aftur á S-V hornið með bros á vör og gleði í hjarta. Þrátt fyrir að hafa verið læst inni klukkan 12 bæði kvöldin, þá tókst okkur samt að gera eftirfarandi í litlu skíðaferðinni okkar á Akureyri:

- Fara á skíði í Hlíðarfjalli.
- Uppgötva að Egill Pétursson er nákvæmlega eins og hvalur.
- Fara á Subway á meðan allir aðrir heimsóttu Bautann eða Greifann.
- Taka myndaþátt, þar sem meðal annars talibanakonan Þorbjörg og wifebeater eiginmaðurinn hennar Aðalsteinn komu við sögu auk hvalamyndar af Agli.
- Borða meira nammi en heilbrigt þykir.
- Díla við svefngalsa og sykurvímu í kjölfar sælgætisátsins.
 - Komast að því að Verzlingar sjá ljósið aðeins oftar en við.
- Fara tvisvar í sund, í seinna skiptið var ég skilin eftir ein og strákarnir reyndu ekki einu sinni að leita að mér. Þvílíkir herramenn þessir piltar.
- "Alo, Johan" var vinsælt auk þess sem danskan réð ríkjum.
- Gott-til-glóðarinnar svipurinn minn náðist á filmu þar sem ég seildist í Skittlespokann hans Alla.
- Egill fékk sinadrátt í báðar lappirnar í einu og sagði af því tilefni að hann "væri svo vansæll".
- Mér og Jóhönnu datt báðum það snilldaráð í hug að koma ekkert með dýnu, heldur bara troða okkur hjá einhverjum. Við sváfum báðar á gólfinu.
- MRingar sigruðu MAinga í ræðukeppni (víú), en umræðuefnið "Akureyri er betri en Reykjavík" var samt frekar súrt.

Æj ég er að gleyma svo miklu, en þetta var allt í allt æðislegt og takk allir fyrir skemmtilega ferð! Farin að sofa... vá ég þarf sko á svefninum að halda!

Mikið óskaplega langar mig í kökuÞorbjörg Þorvaldsdóttir

Síðasta helgi var viðburðarík, en samt tókst mér að eyða heilum þremur kvöldum í röð í að gera ekki neitt. Mig langar í hunang, en þar sem það er ekki lengur til hérna heima verð ég að sætta mig við tilhugsunina um gott te.

Næsta helgi verður svakaleg. Þá ætla ég að skella mér til Akureyrar á skíði ásamt fullt af MR-ingum, það verður massa!

Æ, voðalega er ég tóm í blogginu eitthvað... pff :P

Árshátíð FramtíðarinnarÞorbjörg Þorvaldsdóttir

Ég verð nú eiginlega að viðurkenna að gærkvöldið hefur skipað sér í hóp með áramótunum, gathering hjá Balcons og busaballinu!

Vá hvað það var gaman!

PS. Ég hef ekkert merkilegt að segja ykkur - það er ástæðan fyrir því að ég skrifa aldrei hingað inná, hehe.

Ú, bara blogg?Þorbjörg Þorvaldsdóttir

Vá, það er alveg merkilegt hvað ég get alltaf fundið mér eitthvað að gera. Ákkúrat núna er herbergið mitt hreinna en það hefur verið mjög lengi, öll fötin inni í skáp aldrei þessu vant, auk þess sem ég tæmdi ruslið og fór fram með óhreina tauið. Ég er búin að ákveða í hverju ég ætla á morgun, eftir miklar vangaveltur. Ég er líka búin að fara í langt bað þar sem ég eyddi gríðarlegum tíma í að raka á mér lappirnar og þvo á mér hárið. Núna er ég að blogga, sem hefur ekki gerst síðan rétt fyrir afmælið mitt.

Já, ég veit að þessi hegðun er dæmigerð fyrir fólk sem er að reyna að koma sér undan að gera eitthvað - en ég er semsagt að fara í próf í fyrramálið. Sögupróf svona til að vera nákvæm, en þrátt fyrir að ég elski þetta fag þá bara nenni ég ekki að opna bókina og byrja að glósa. Ég gerðist samt svakalega dugleg í dag og las það sem er til prófs lauslega á Íþöku eftir skóla, en það er líka það eina sem ég er búin að gera. Ég gæti farið tekið þetta próf án labello/vaselínlaust eins og sumir myndu segja, en það ætlar ekki að fara svo með þessu áframhaldi...

Okei vó - leiðinlegt blogg, ha?

Allavegana þá er allt gott að frétta af mér, þið þarna sem ég heyri sjaldan í. Er búin að kynnast frábærum strák sem heitir nafni sem byrjar á besta stafnum you know - en hann heitir Þórir, og ég held meira að segja að hann nenni alveg að fara út með mér að renna sér á plastpokum í snjónum. He better... En nei, ég er ekki komin með bílprófið góða sem bíður bara ógeðslega spennt eftir því að ég panti það.

Þetta blogg var bara plat, en spurning hvort ég ætti ekki að fara að kíkja á Rómaveldi...



Sorrí gæsÞorbjörg Þorvaldsdóttir

Mikið að gera, minni tími...

17 vetra á morgunÞorbjörg Þorvaldsdóttir

Jæja, á morgun eru sautján ár síðan ungfrúin kom sér út í heiminn heilum sjö vikum fyrir tímann. Ég var að skoða gamla bloggið mitt og þetta skrifaði ég í tengslum við afmælið mitt í fyrra:

"Þegar ég er orðin 16 þá...

...næli ég mér í eitt stk. dreng, ekki spurning haha :D
...klára ég grunnskólann og byrja í framhaldsskóla
...fer ég til Ítalíu með fjölskyldunni
...ætla ég til Ástralíu með stelpunum :D
...fer svo ábyggilega eitthvert með sundinu
...og bæti mig vonandi eitthvað í því ;P
...og svo að sjálfsögðu allt annað sem er gott!"


Ég nældi mér nú ekki í neinn dreng haha, en allt hitt gerði ég - nema bætingarnar í sundinu, en ég hætti einmitt í sundi á síðasta ári af því að ég var hætt að bæta mig (plús fékk ógeð) ... hehe

En þar sem ég hef alveg ógnargaman af svona þá ætla ég að gera nýtt fyrir sautján árin.

Þegar ég er orðin 17 þá...

...fæ ég bílpróf
...fer ég í ótal djammferðir með stelpunum
...fer ég til Danmerkur að heimsækja Christinu
...flyt ég í nýtt hús
...mun ég finna strákinn sem nennir að fara út með mér að renna sér á plastpokum í snjónum (haha Rósa)

Ösh það er verið að reka mig úr tölvunni.



Síða 1 af 7

Auglýsing

Sniðugt

Mitt dót

Gagnasafn